Ferð: Snæfellsjökull um páska 

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Vesturland

Snæfellsjökull um páska 

Lýsing

Snæfellsjökull (1446m) er með frægustu jöklum á Íslandi. Sumir finna sterk áhrif frá jöklinum og telja að hann sé ein af sjö stærstu orkustöðvum jarðar. Löngum hefur dulúð því sveipað jökulinn og umhverfi hans. Á góðum degi er magnað útsýni frá toppi Snæfellsjökuls sem skilur engan eftir ósnortinn. Við munum leggja af stað frá Arnarstapa kl. 9 og er áætlað að ganga á jökulþúfurnar sé um 7 – 8 klst.

Jöklabúnaður er nauðsynlegur; ísöxi, jöklabroddar og göngubelti.


Í þessari ferð verður gengið á tvo af hundrað hæstu tindum landsins. Sjá nánar.

Brottför/Mæting
Kl. 9 frá Arnarstapa, bílastæði sem er á hægri hönd framan við minnisvarða um Bárð Snæfellsás
Fararstjórn

Hjalti Björnsson 

Innifalið
Fararstjórn

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð á jökli

Ísland liggur við heimskautsbaug og alltaf má búast við vondum veðrum, sér í lagi þegar ferðast er á há fjöll eða jökla. Jafnframt krefjast jöklaferðir margvíslegs öryggisbúnaðar og því er dagpoki jöklaferðalangs töluvert þyngri en þegar gengið er á lægri fjöll utan jökla.

Athugið að enginn skyldi ferðast einn á jökli. Á sprungusvæðum jökla þarf að ganga í línu og lágmarkið er þrír í línu. Aðeins þeir sem hafa góða þekkingu á sprungubjörgun ættu að ferðast án fararstjóra á jökli.

Listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir uppháir gönguskór úr leðri eða stífir jöklaskór
  • Mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís
  • Peysa úr ull, flís eða mjúkskel
  • Göngubuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi. Nauðsynlegt er að taka nóg af vatni þegar ferðast er lengi á jökli
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar

Öryggisbúnaður

  • Belti með karabínu
  • Jöklabroddar sem búið er að stilla á gönguskóna
  • Ísöxi
  • Jöklalína (hjá fararstjóra)
  • Sprungubjörgunarbúnaður (hjá fararstjóra)
  • Snjóflóðaýlir, snjóflóðastöng og skófla ef ferðast er um möguleg snjóflóðasvæði

Ef fjallaskíðaferð

  • Fjallaskíði og stafir
  • Skíðahjálmur
  • Skinn undir skíðin
  • Broddar undir skíðin

Fróðleikur

Eftirfarandi árbók fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.

       

Gott að vita

  • Göngutími: 7-8 klst.
  • föstudagur 18.apríl  og laugardagur 19. apríl til vara
  • Gott nesti og heitt á brúsa.
  • Jöklabúnaður er nauðsynlegur; ísöxi, jöklabroddar og göngubelti.

Lokað verður fyrir skráninguna þriðjudaginn 15. apríl kl. 14.

Jöklabúnaður:
Hægt er að leigja jöklabúnað hjá Ferðafélagi Íslands fyrir þessa ferð með því að smella HÉR