Ferð: Sprungubjörgun

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Suðvesturland

Sprungubjörgun

Námskeið
Lýsing

25 - 27. apríl , 3 dagar
Kennt: Kl. 18:00 – 22.00 föstudag og kl. 9-17 laugardag og sunnudag í risi FÍ Mörkinni 6.

Námskeiðinu er ætlað að kenna örugga og ábyrga ferðamennsku um snæviþakta jökla, auk réttra viðbragða ef ferðafélagi fellur í sprungu. Þátttakendum eru kenndar staðlaðar aðferðir við sprungubjörgun miðað við staðlaðan lágmarksbúnað. Gert er ráð fyrir því að þátttakendur búi yfir reynslu í ferðamennsku að vetri og ákjósanlegt að hafa reynslu af fjallamennsku. Ekkert eiginlegt námsefni er í boði fyrir þetta námskeið, en glærur með námsefninu verða aðgengilegar.

Námskeiðið hefst með bóklegri yfirferð á efni námskeiðsins, jöklafræði og öryggi í jöklaferðum. Verklegir þættir eru kenndir bæði innan og utandyra þar sem farið er yfir hvernig tryggja skal öryggi ferðamanna á jökli, bjarga ferðafélaga sem fallið hefur ofan í sprungu. Útiæfingar skulu fara fram í snjóhengjum eða jökulsprungum á snæviþöktum jökli.

 

Leiðbeinandi: Kemur frá Landsbjörgu

Gott að vita

  • Svo hægt sé að sitja þetta námskeið þarftu að hafa lokið Fjallamennsku 1 og hafi reynslu af fjallaferðum.
  • Lágmarksaldur 18 ár
  • Heildartímafjöldi: 20 klst.
  • Mat: Nemendur eru símetnir á námskeiðinu m.t.t. framgöngu þeirra þar.
  • Réttindi: Engin réttindi fylgja þessu námskeiði.