Ferð: Þingvellir

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Suðurland

Þingvellir

Ferðaskíði
Lýsing

Þingvellir eru einstök náttúruperla sem hefur að geyma fallega skóga, fagra fjallasýn og mikla sögu.
Í þessari ferð könnum við ferðaskíðaleiðir um Þingvelli. Leiðarval fer eftir veðri, aðstæðum og snjóalögum.
Þægileg leið sem hentar
byrjendum jafnt og vönum enda er skíðað um frekar slétt landslag.
Skíðað: um 8 km. Um 3-4 klst. 

Brottför/Mæting
Kl. 10:30 hjá  þjónustumiðstöðinni Leirum á Þingvöllum
Fararstjórn

Bergur Pálsson og Agnes Ósk Sigmundardóttir 

Innifalið
Fararstjórn 

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Fleiri skíðaferðir 2025

Gott að vita:

Gott er að hafa með sér heitt á brúsa og gott nesti. Þátttakendur fá nánari upplýsingar og búnaðarlista í tölvupósti þegar nær dregur ferðinni, en þurfa að hafa til umráða ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum, skinn undir skíðin og skíðastafi. 

Upphafsstaður göngu:
Þjónustumiðstöðin á Þingvöllum, sjá hér