Ferð: Vatnaleiðin

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Vesturland

Vatnaleiðin

Lýsing

Þriggja daga gönguferð í samvinnu við Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs um Vatnaleiðina frá Hallkelsstaðahlíð í Hnappadal að Bifröst. Gist er í skálum Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs. Krefjandi ganga og töluverð hækkun.
Leiðin liggur um söguslóðir og um stórbrotna náttúru. Gengið verður með dagpoka, en svefnpokar, matur og annar búnaður verður trússaður milli gististaða.

Brottför/Mæting
Kl.10 frá Bifröst. Farþegar koma á eigin vegum að Bifröst í Norðurárdal.
Fararstjórn

Agnes Ósk Sigmundardóttir  og Gerhild Hammer

Innifalið
Gisting, rúta, trúss og fararstjórn

Búnaður

Pakkað fyrir bakpokaferð

Þegar gengið er með allt á bakinu er nauðsynlegt að skera útbúnað niður eins og hægt er, án þess að sleppa nauðsynjum. Hafið bakpokann ekki þyngri en þið treystið ykkur til að bera. Hæfileg þyngd fer eftir líkamsástandi hvers og eins en oft er miðað við að bakpoki skuli ekki vera þyngri en 15-20% af líkamsþynd þess sem ber hann.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála, þá má í flestum skálum Ferðafélags Íslands finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis/kamars með klósettpappír.

Ýmislegt

  • Bakpoki, ekki of stór
  • Svefnpoki, léttur og hlýr
  • Bakpokahlíf / plastpokar inn í bakpokann
  • Tjald og tjalddýna
  • Göngustafir
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Höfuðljós
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Broddar, ef þurfa þykir
  • Peningar

Snyrtivörur / sjúkravörur

  • Hælsærisplástur, plástur og teygjubindi
  • Verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði / þvottapoki
  • Sólvarnarkrem og varasalvi
  • Eyrnatappar

Mataráhöld / eldunartæki

  • Prímus, eldsneyti og pottur
  • Eldspýtur
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Vasahnífur / skæri

Fatnaður

  • Góðir gönguskór
  • Vaðskór / skálaskór
  • Tvö pör mjúkir göngusokkar
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Nærbuxur til skiptana
  • Nærföt, ull eða flís
  • Flís- eða ullarpeysa
  • Millilag úr ull eða flís
  • Göngubuxur
  • Stuttbuxur
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar

Matur

  • Frostþurrkaður matur
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Haframjöl
  • Smurt brauð og flatkökur
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Leiðarlýsing

1.d.,þriðjud. Farþegar koma á eigin vegum að Bifröst í Norðurárdal. Rúta nær í hópinn og ekur að Hallkelsstaðahlíð, þar sem gangan hefst. Gengið upp Hellisdal, um Klifsskarð yfir í Hítardal. Ef skyggni er gott verður gengið út á Rögnamúla. Ganga dagsins endar við Hólm, leitarmannahús í Hítardal þar sem verður gist. Ganga: um 12 km. Hækkun: 657m.

2.d.
Gengið austur Þórarinsdal og upp úr botni dalsins niður í Langavatnsdal við norðurenda Langavatns. Þaðan er gengið út með Langavatni og gist í leitarmannahúsi á Torfhvalastöðum. Ganga: um 23 km. Hækkun:670m

3.d
. Gengið frá Torfhvalastöðum að Beylá og þaðan yfir Beylárheiði. Gengið á Vikrafell ef útsýni er gott. Annars er gengið niður að Vikravatni, norður fyrir Vikrafell þar til komið er á gönguleiðina niður að Hreðavatni og þaðan að bílunum á Bifröst. Ganga: um 18 km. Hækkun:575m