Vatnaleiðin - Gönguleiðir milli Hnappadals og Norðurárdals
Eftir Reynir Ingibjartsson
Fjalllendið milli Snæfellsness og Borgarfjarðar, Dala og Mýra, er lítt þekkt öllum almenningi. Dalirnir: Hnappadalur á Snæfellsnesi og Norðurárdalur í Borgarfirði, ramma inn svæðið og milli þeirra liggja Hítardalur og Langavatnsdalur.
Margbreytilegt fjalllendi og heiðarlönd setja svip á svæðið, en ekki síst eru það öll vötnin frá Hlíðarvatni í Hnappadal að Hreðavatni í Norðurárdal.
Árið 1995 hóf Ferðafélag Íslands að efna til gönguferða á þessum slóðum, þvert yfir dali og meðfram vötnum. Til varð gönguleið sem síðan er kölluð Vatnaleiðin og hefur notið vaxandi vinsælda hjá göngufólki. Er leiðin að jafnaði gengin á þremur dögum.
Kaflar í bókinni
- Gönguleiðir milli Hnappadals og Norðurárdals
- Vatnaleiðin / skálaleið
- Vatnaleiðin / tjaldleið
- Kringum Hlíðarvatn
- Sagan af Beinakasti
- Gönguleiðir á Geirhnúk
- Björn Hítdælakappi
- Kringum Hítarvatn
- Búskapur á Tjaldbrekku
- Tröllakirkja - Smjörhnúkur
- Grjótárdalur - Háleiksvatn
- Ljósufjallagosbeltið frá Berserkjahrauni að Grábrók
- Kringum Langavatn
- Harmsaga í Langavatnsdal
- Grímsdalur - Skallagrímssel - Vikrafell
- Kringum Vikravatn
- Kringum Hreðavatn
- Bifröst - Hreðavatnsskáli - Hreðavatn
- Afréttir, smalamennskur og réttir
- Skarðsheiðarvegur vestri
- Fyrsta ganga eftir Vatnaleið
- Dalirnir fjórir