110 göngugarpar á Heklu

Alls tóku 110 manns þátt í Jónsmessugöngu FÍ á Heklu.  Ferðin gekk vel og var gengið upp í ágætu veðri þrátt fyrir skúraveður allt í kring. Komið var á Heklutind skömmu eftir miðnætti.  Útsýnið var stórbrotið,  sólroðin ský í fjarska og einstaka fjallstindur reis upp úr skýjum.
Myndir úr ferðinni er væntanlegar í myndabanka FÍ.