112 Iceland er nýtt snjallsímaforrit eða „app“ fyrir ferðafólk. Með forritinu geta ferðamenn kallað eftir aðstoð ef um slys eða óhapp er að ræða. Einnig geta þeir nýtt það til að skilja eftir sig slóð, „brauðmola“, en slíkar upplýsingar geta skipt sköpum ef óttast er um afdrif viðkomandi ferðalanga og leit þarf að fara fram. Ekki er þörf á gagnasambandi til þess að nýta forritið, hefðbundið GSM samband nægir.
Valitor þróaði forritið í samvinnu við hugbúnaðarfyrirtækið Stokk en því er ætlað að auka öryggi ferðamanna hér á landi og þéttir það öryggisnet sem fyrir er í landinu. Að verkefninu hafa einnig komið Neyðarlínan, Slysavarnafélagið Landsbjörg og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Valitor hefur nú afhent þessum samstarfsaðilum nýja forritið til frjálsra nota og styður þannig hið mikilvæga öryggis- og forvarnarstarf þeirra.
Ferðamönnum fjölgar stöðugt hér á landi og samkvæmt könnunum Ferðamálastofu sækir stærsti hluti þeirra í náttúru landsins. Alkunna er að íslensk náttúra getur reynst hörð í horn að taka, fólk getur fyrirvaralaust lent í óvæntum aðstæðum og áætlanir brugðist. Þegar slíkt hendir er nauðsynlegt að geta kallað eftir aðstoð á skjótan hátt og þar getur 112 Iceland komið sér vel. Skýrt skal tekið fram að þessum hugbúnaði er ekki ætlað að leysa önnur öryggistæki á borð við neyðarsenda eða talstöðvar af hólmi. Hins vegar er forritið nýja gagnleg viðbót sem nýtist hinum mikla fjölda fólks er notar snjallsíma og þéttir þannig það öryggisnet fjarskipta sem fyrir er í landinu.
Snjallsímaforritið 112 Iceland má einnig nota erlendis en samskiptin fara þó alltaf fram í gegnum númerið 112 á Íslandi. Í slíkum tilvikum hefur Neyðarlínan samband við viðbragðsaðila í viðkomandi landi sem aðstoðar síðan þann einstakling er í hlut á.
Unnt er að sækja snjallsímaforritið 112 Iceland á www.safetravel.is, í gegnum iPhone App Store eða á Play Store hjá Google fyrir þá sem eru með Android síma.
Leiðbeiningar um notkun 112 Iceland
Nánari upplýsingar veitir Tómas Gíslason aðstoðarframkvæmdarstjóri Neyðarlínunnar í síma 570-2002