50 fjallaleiðir til að hlaupa eða ganga

Haldið verður sérstakt kynningarkvöld fyrir FÍ félaga á nýútkominni bók Stefáns Gíslasonar, Fjallvegahlaup, miðvikudaginn 26. apríl, kl. 20 í risinu fyrir ofan skrifstofu FÍ, Mörkinni 6.

Bókin, Fjallvegahlaup, hefur að geyma lifandi leiðarlýsingar 50 fjallvega víðs vegar um landið auk veglegs undirbúningskafla og fjölda góðra ráða. Leiðirnar er hægt að hlaupa eða ganga, allt eftir getu hvers og eins.

Leiðirnar eru ólíkar en eru þó allar 9 kílómetrar eða lengri, ná að minnsta kosti 160 metra hæð yfir sjó og tengja saman tvö byggðarlög eða áhugaverða staði. Þetta geta verið fornar göngu- eða reiðleiðir eða fáfarnir bílvegir (F-vegir).

Hverri leið fylgir ítarleg leiðarlýsing, kort og GPS-hnit, aragrúi ljósmynda og upplýsingar um staðhætti og aðstæður, auk margs konar fróðleiks um sögu og landafræði leiðanna sem hlaupnar eru eða gengnar hverju sinni.

Stefán Gíslason er umhverfisstjórnunarfræðingur sem ákvað á fimmtugsafmælinu sínu að hlaupa 50 fjallvegi fyrir sextugt. Markmiðið með verkefninu var meðal annars að halda sér í formi á sextugsaldrinum, kynnast landinu sínu betur og vekja áhuga annarra á útivist og hreyfingu. Stefáni tókst ætlunarverk sitt, hljóp 50 leiðir, stundum einn en oftar í góðra vina hópi, og afraksturinn má finna hér.

Fjallvegahlaup er bók fyrir allar fjallageitur, hlaupara, náttúruunnendur og þá sem vilja takast á við nýjar áskoranir.

Bókin verður seld á sérstökum afslætti á kynningarkvöldinu. Einnig er hægt að kaupa bókina með því að smella hér. Með því að stimpla inn afsláttarkóðann HLAUP fæst bókin á 5.000 kr í stað 5.990 kr.