70 manns í hressilegri morgungöngu á Keili

Tæplega 70 manns tóku þátt í morgungöngu Ferðafélagsins í morgun á Keili þótt veður væri nokkuð hryssingslegt. Þetta var vaskur hópur sem gekk snúðugt og hvíldarlítið á fjallið. Þar uppi flutti Hróbjartur Darri Karlsson hjartalæknir stórskemmtilega hugvekju um það hvers vegna það er gott fyrir hjartað og heilsuna að ganga á fjöll og var honum ekki andmælt.