90 ára afmæli FÍ

Ferðafélag Íslands fagnar um þessar mundir 90 ára afmæli og hefur starfsemi ársins borið þess merki, með fjölbreyttri göngudagskrá, viðburðum og útgáfu. Á þeim 90 árum sem liðin eru frá stofnun félagsins hafa verið farnar meira en 4.000 ferðir með yfir 250.000 þátttakendum, byggðir 40 fjallaskálar, reistar yfir 60 göngubrýr, lagðir tugir gönguleiða og gefnar út 90 árbækur. Félagsmenn nú eru um 8.000 en stofnfélagarnir fyrir réttum 90 árum voru 63 talsins.

Í fararstjórahópi félagsins eru félagsmenn úr öllum áttum, m.a. úr röðum fræðimanna innan háskólasamfélagsins, heimamanna sem gjörþekkja hvern stein á sínu svæði og úr hópi áhugamanna sem hafa aflað sér mikillar reynslu og þekkingar. Ferðafélagið er áhugamannafélag. Óeigingjarnt sjálfboðaliðastarf félagsmanna hefur verið burðarásinn í starfsemi og velgengni félagsins.

Ferðafélagið var stofnað 27. nóvember 1927 í Kaupþingssalnum á efstu hæð Eimskipafélagshússins við Pósthússtræti. Í ávarpi til almennings vegna stofnfundarins sagði m.a.: „Á síðari árum hefur mjög aukist áhugi manna um að ferðast hér um og kynnast óbyggðum landsins og öðrum lítt kunnum landshlutum. Áhugi hefur einnig vaknað fyrir því að kynna landið erlendum þjóðum, náttúru þess, sögu og þjóðhætti. Hefur mönnum fyrir löngu ljóst orðið að fáfræði erlendra þjóða um hagi vora er oss til hinnar mestu óþurftar á ýmsan hátt, og mundi oss á ýmsan veg reynast stórhagur að aukinni þekkingu á landi voru erlendis.“

Líf og fjör í FÍ   Líf og fjör í FÍ

Allar götur frá stofnfundinum hefur félagið sinnt þeim tilgangi sínum að greiða götu ferðamanna á Íslandi og hvetja landsmenn til að ferðast um Ísland, Þetta gerir félagið meðal annars með skipulagningu fjölbreyttra ferða ásamt uppbyggingu og rekstri fjallaskála víða um land. Jafnframt með viðamiklu útgáfustarfi, merkingu gönguleiða og upplýsingagjöf. Auk fjölbreyttra ferða er margs konar félagslíf innan vébanda FÍ, svo sem myndakvöld, námskeið og þemaferðir af ýmsu tagi. Á síðustu árum hafa fjallaverkefni, lýðheilsu- og hreyfiverkefni, Ferðafélag barnanna og FÍ ung notið mikilla vinsælda.

Á Herðubreið

Innan FÍ starfa tólf deildir um land allt. Deildirnar starfa samkvæmt lögum FÍ, standa fyrir ferðum, reka gistiskála og sinna fræðslu og útgáfustarfi í heimabyggð. Allir geta notað skálana, óháð aðild að FÍ en félagsmenn njóta afsláttarkjara. Yfir sumartímann eru skálaverðir í flestum stærri skálum sem standa við fjölfarnar gönguleiðir, eins og til dæmis á Laugaveginum.

Náttúruvernd hefur ávallt verið á stefnuskrá félagsins en með því að kynna og opna landið fyrir almenningi er unnið mikilvægt starf til að auka náttúruvitund fólks. Félagið hefur sett sér metnaðarfulla umhverfisstefnu og hefur skuldbundið sig til að  vera í fararbroddi á sviði umhverfismála og stuðla að sjálfbærri þróun í starfi sínu.