Morgunstund gefur gull í mund. Morgungöngur FÍ dagana 6.-10. maí.
Það er einstakt að standa á fjallstindi eldsnemma morguns og vera mætt í vinnuna klukkan 9 og vera búin að ganga á fjall.
Komdu sjálfum þér á óvart með göngu í morgunsárið og fylltu lungun af fjallalofti fyrir verkefni dagsins. Göngurnar taka 2-3 klst.
- 6. maí. Mánudagur: Helgafell ofan Hafnarfjarðar. Gangan hefst við Kaldársel.
- 7. maí. Þriðjudagur: Mosfell. Gangan hefst við bílastæðið við Mosfellskirkju í Mosfellsdal.
- 8. maí. Miðvikudagur: Úlfarsfell. Gangan hefst við bílastæði Skógræktarinnar við Vesturlandsveg.
- 9. maí. Fimmtudagur: Helgafell í Mosfellsbæ. Ganga hefst við bílastæði undir fjallinu, Mosfellsdalsmegin.
- 10. maí. Föstudagur: Esjan upp að Steini. Gangan hefst við bílastæði undir Esju.
Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.
Fararstjórn
Auður Kjartansdóttir og Heiðrún Meldal.