Á gönguskíðum í Landmannalaugar

Ferðafélagið býður upp á gönguskíðaferð í Landmannalaugar um næstu helgi. Lagt verður af stað á föstudagsmorgni frá Mörkinni 6 kl. 8.  Gengið verður í Laugar og til baka og komið heim á sunnudegi.  Síðar í vikunni verður ákveðið hvort gengið verður upp Emstrur eða farið upp hjá Keldum. Þátttakendur þurfa að vera vanir á gönguskíðum og í góðu formi.  Vaða þarf Bláfjallakvísl eða Markárfljót eftir því hvor leiðiin verður valin.

Verð í ferðina er kr. 8.000 / 10.000.  Innifalið gisting, rúta og fararstjórn.
Fararstjóri: Páll Guðmundsson