Á mörkum - Valgarður Egilsson

Valgarður Egilsson hefur lesið inn á geisladisk ljóðabók sína  Á mörkum, og er diskurinn  nýkominn út  og ber sama heiti, Á mörkum. Eru á diskinum öll ljóð bókarinnar, þrjátíu og eitt að tölu.

     Ljóðabókin  Á mörkum kom út síðastliðið vor hjá JPV Forlagi og hefur fengið góðar viðtökur. Þetta er þriðja ljóðabók Valgarðs. Árið 1988 kom út ljóðabókin Dúnhárs kvæði. En 1984 voru gefnar út Ferjuþulur, Rím við bláa strönd, en það voru tuttugu þulur og sögðu frá siglingu Akraborgarinnar. Ferjuþulurnar setti Alþýðuleikhúsið á svið á sínum tíma.

Valgarður las Ferjuþulur  inn á geisladisk fyrir nokkrum árum og er diskurinnn enn fáanlegur.

    Valgarður vinnur sem læknir að rannsóknastörfum. Hann hefur lengi fengist við skáldskap, og af  ýmsu tægi, m a skrifað fyrir leikhús, og setti Þjóðleikhúsið á svið Dags hríðar spor árið 1979 undir stjórn Brynju Benediktsdóttur og Erlings Gíslasonar.. Einnig hefur Valgarður skrifað skáldsögu á ensku Waiting for the South Wind. Höfundur gefur geisladiskinn út sjálfur.  

    Geisladiskurinn  Á mörkum  fer í  bókabúðir á næstunni og fæst á skrifstofu FÍ á sérkjörum fyrir félagsmenn. Valgarður er fararstjóri hjá FÍ og fyrrverandi varaforseti félagsins.