Dagsetning: 26.11.2010
Brottfararstaður:
Viðburður: Aðventuferð í Þórsmörk
Lýsing:
26. - 28. nóvember – Aðventuferð í Þórsmörk
Helgarferð frá föstudegi til sunnudags þar sem farið verður í gönguferðir og stjörnuskoðun.
Aðventustemmning með jólaföndri og kvöldvöku þar sem sagðar verða sögur af jólasveinunum.
Lagt af stað frá Mörkinni 6 kl. 18.00 á föstudegi.
Verð kr. 10.000 fyrir fullorðinn, kr. 5.000 fyrir barn, fjölskylduverð kr. 20.000.
Innifalið: rúta, gisting, föndurefni og fararstjórn.
Þátttakendur taka með sér nesti og góðan búnað.