Æfing í Esju - 5. mars

Ferðafélag Íslands stendur fyrir kvöldgöngum á Esjuna ,,Ljós í Esju”  á fimmtudögum.  Lagt er af stað frá bílastæðinu við Mógilsá kl. 18.  Gert er ráð fyrir að ganga taki 2 – 3 klst. Mikilvægt er að hafa góðan búnað, þe góða gönguskó, hlífðarfatnað, húfu og vettlinga og nú á þessum árstíma að hafa með sér höfuðljós. 

Fararstjóri í fyrstu ferðinni fimmtudaginn  5. mars verður Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ.  
Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir.

Gönguferðir á Esjuna eru afar góð heilsubót, bæði styrkjandi og einnig eru fjallgöngur mjög góðar ,,brennsluæfingar".

Gönguferðir á Esjuna eru einnig mjög góðar undirbúningsgöngur fyrir önnur og meira krefjandi verkefni, t.d. fyrir ferðir á Hvannadalshnúk.

Rétt er að benda þeim sem fara í Esjugöngu sem og í aðrar fjallgöngur að oft getur verið flughállt í fjallinu, bæði á steinum og í klettum og því rétt að gæta að sér í hverju skrefi.

Góð relga er að huga að veðurspá fyrir ferð sem og að láta vita af ferðum sínum og áæltuðum komutíma heim.