Leikhópurinn Á senunni, Hafnarfjarðarleikhúsið og Drill Hall í London kynna:Ævintýrið um AugasteinSló í gegn í Liverpool! Næst er það Hafnarfjörður og svo London!Leikhópurinn Á senunni kynnir enn á ný hina margrómuðu og yndislega fallegu jólaleiksýningu Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson, í samstarfi við Kolbrúnu Halldórsdóttur og Helgu Arnalds, sem verður að nýju sýnd í nóvember og desember 2009 í Hafnarfjarðarleikhúsinu (www.hhh.is)Sýningin var upprunalega hönnuð sem farandsýning og þetta árið fer hún enn á flakk. Laugardaginn 21. nóvember var hún sýnd á NICE listahátíðinni í Liverpool og sló í gegn í Unity leikhúsinu (www.nice-festival.co.uk) Áhorfendur fylltu tvær sýningar og skemmtu sér hið besta (sjá dóm: http://hopestreet.co.uk/2009/11/icelandic-puppets-at-unity-theatre/) Næst heldur hópurinn með sýninguna til London og verður í Drill Hall leikhúsinu 5. og 6. desember (www.drillhall.co.uk) og heldur að því loknu í stutta leikferð í skóla í nágrenni London áður en haldið verður aftur heim í Hafnarfjörðinn. Þess má geta að barnabókin Ævintýrið um Augstein fékk glimrandi viðtökur fyrir jólin 2003 og seldist í þúsundum eintaka.Ævintýrið um Augastein var frumsýnt í London árið 2002 og á Íslandi árið 2003. Verkið byggir á hinni sígildu sögu um Grýlu og jólasveinana en ævintýrið er tekið lengra og sagan um litla drenginn, sem nefndur er Augasteinn, verður miðpunktur leikritsins. Augasteinn lendir fyrir tilviljun í höndum hinna hrekkjóttu jólasveina sem læra smám saman að elska litla drenginn og annast hann. Skyndilega kemst Grýla á snoðir um tilveru barnsins og við tekur æsispennandi flétta. Ná jólasveinarnir að bjarga Augasteini úr klóm Grýlu og Jólakattarins áður en jólin ganga í garð? Það er Felix Bergsson sem leikur öll hlutverkin í Ævintýrinu um Augastein. Brúður og leikmynd eru eftir Helgu Arnalds, lýsingu hannaði Jóhann Bjarni Pálmason og tónlistin var útsett af Hróðmari Inga Sigurbjörnssyni fyrir Háskólakórinn undir stjórn Hákons Leifssonar. Hljóðmynd er verk Sveins Kjartanssonar. Leikstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir. Nánari upplýsingar, myndir og annan fróðleik má finna á www.senan.is og miðasala er á www.midi.is Hægt er að ná í Felix Bergsson í síma 8619535 og Kolbrúnu Halldórsdóttur í 8624808.Sýningar sem í boði eru verða sunnudagana 29. nóvember og 13. desember, kl. 14.00 og 16.00 Athugið – aðeins þessar sýningar!!Leikhópurinn Á senunni sem hélt upp á 10 ára afmæli nú á árinu fékk Grímuna fyrir leiksýningu ársins árið 2003, Kvetch og aftur árið 2007 fyrir barnasýningu ársins, Abbababb!Þetta leikrit Felix Bergssonar er þeim kostum búið að hér er fullt af dramantískri spennu..” “Hér er margt sem gleður augu og eyru, ekki síður fullorðinna en barna... ef einhver hefur einhvern tímann átt erfitt með að komast til botns í gátunni um hvernig gömlu, hrekkjóttu sauðalitajólasveinarnir urðu að hinum gjafmildu öðlingum sem þeir eru í dag, þarf sá hinn sami að drífa sig í leikhús í fylgd nokkurra ungra leikhúsáhugamanna og finna svarið. Felix er nefnilega búinn að komast að þessu og miðlar því á dæmalaust einstakan máta ... nú fyrir jólin.” (SH, Mbl.)Yndisleg sýning þar sem hæfileikar Felixar til að ná til barna nýtast að fullu! ... Perla!” (SS, Rás 2) Sagan af Augasteini litla stendur fyllilega fyrir sínu því þetta er yndisleg saga..” “Allt um vefjandi einlægni og kærleikur gefa bókinni mikið gildi. Felix hefur sprelllifandi frásagnargáfu..” (dómur um bókina, KHK, Mbl.)