Ævintýrið um Augastein - tilboð til félagsmanna FÍ

Tilboð til félagsmann í Ferðafélagi Íslands

Ævintýrið um Augastein

eftir Felix Bergsson

Leikhópurinn Á senunni býður félagsmönnum í Ferðafélagi Íslands 25% afslátt af miðaverði á fjölskyldusýninguna Ævintýrið um Augstein sem verður sýnd í Tjarnarbíói nú fyrir jólin.  Þetta er falleg jólasaga sem hefur fært leikhúsgestum gleði og jólastemmningu undanfarin 9 ár.  Nánari upplýsingar um sýninguna má finna neðanmáls.

Almennt miðaverð á sýninguna er 2000 krónur en félagsmönnum býðst að kaupa miðana á 1500 krónur.  Hafið samband við miðasölu Tjarnarbíós (www.tjarnarbio.is) og nefnið tilboðið þegar miðar eru keyptir.  Sími miðasölunnar er 5272100 og hún er opin alla daga frá 13.00 – 15.00

Kær jólakveðja,

Leikhópurinn Á senunni