Álfar og Tröll - Vífilfell um Jónsmessu.

Ferðafélag barnanna býður upp á gönguferð á Vífilsfell um Jónsmessu föstudaginn 24 júní. Lagt verður af stað kl. 18 frá Mörkinni 6 á einkabílum.

Álfadans og leikir, lifandi tónlist og dulúðug stemming. Gítarspil og harmonikkuleikur. Allir að mæta vel klæddir því það getur orðið kalt upp á fjalli.

Þáttaka ókeypis, allir velkomnir.

Ef þið hafið frekari fyrirspurnir er hægt að hafa samband við okkur gegnum tölvupóst okkar á fb@fi.is

Hlökkum til að sjá ykkur öllsömul hress og kát upp á Vífilfelli.