Alla leið á Sandfell og Selfjall

Laugardaginn 23. jan. n.k. gengur Alla leið hópurinn á Sandfell og Selfjall fyrir ofan Lækjarbotna.

Um er að ræða 8 km langa göngu með um 300 metra hækkun á göngu. Við áætlum að gangan taki fjóra tíma eða þar um bil. Við tökum með hálkugaddana, heitt á brúsa og smá nesti.

...

Til þess að komast að upphafsstað göngu skal aka þjóðveg eitt (Suðurlandsveg) í austur. Rétt ofan við brekkuna í Lækjarbotnum skal beygja út af inn á veg til hægri sem liggur að Waldorf skólanum í Lækjarbotnum. Áður en komið er að húsum þar á bæ (ca 1,3km)er hægt að leggja bílum og hefja göngu þaðan.

Þeir sem vilja geta ekið í halarófu úr Mörkinni 6 stundvíslega kl. 9:00
Ganga ætti því að geta hafist ca. kl. 9:20 og hópurinn að vera við bílana aftur um kl. 13:30 – 14:00

Þessi ganga er öllum opin sem vilja kynnast Alla leið dagskránni