Árbók FÍ 2010 komin út - Friðland að Fjallabaki

 

 

 

Árbók Ferðafélags Íslands 2010 er komin út.

 

Árbók Ferðafélags Íslands fjallar að þessu sinni um Friðland að Fjallabaki en þar eru Landmannalaugar og nágrenni í öndvegi. Höfundur bókarinnar er Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ.   

 

Friðland að Fjallabaki er eitt fegursta svæði Íslands og náttúrufar þar einstakt á heimsvísu. Bók, sem fjallar um slíkt svæði, nær aldrei að fanga viðfangsefnið til fulls en reynt hefur verið að birta lesandanum sem flest af áhugaverðum einkennum friðlandsins.

 

Náttúrufari, landi og staðháttum er lýst og getið örnefna og greindur uppruni þeirra eftir því sem kostur er. Saga mannaferða um friðlandið er rakin en hún er að mestu bundin við sauðfjárbúskap nálægra héraða. Annars vegar eru fjallferðir og smalamennska á Landmannaafrétti og hins vegar fjárrekstrar Skaftfellinga. Vörður og gömul sæluhús eru hluti af þeirri atvinnusögu. Þá er einnig sagt frá fyrstu ferðum og náttúrurannsóknum að Fjallabaki frá upphafi og fram til aldamótanna 1900. Loks eru kaflar um ferðamennsku að Fjallabaki, einkum í Landmannalaugum, bæði rómantískar fjallaferðir þangað fyrr á árum og uppbyggingu á ferðaþjónustu Ferðafélags Íslands í Laugum.

 

Sérstök áhersla hefur verið lögð á að bókin nýtist ferðafólki og vísað á lítt þekktar gönguleiðir sem opna nokkur fegurstu svæði friðlandsins.

Eins og hæfir hinu litríka friðlandi eru ljósmyndir bókarinnar framúrskarandi glæsilegar en það var Daníel Bergmann ljósmyndari sem tók myndir sérstaklega fyrir gerð bókarinnar. Þá prýða bókina mörg greinargóð kort svipuð þeim sem lesendur þekkja úr fyrri árbókum. Það er Guðmundur Ó. Ingvarsson sem teiknaði þau.