Árbók FÍ dreift um allt land

Árbók FÍ 2016 Skagafjörður austan Vatna hefur verið vel tekið og búið er að senda þúsundir eintaka til félagsmanna um land allt.

Allir félagsmenn fá bókina senda heim til sín um leið og þeir greiða árgjöld FÍ.

Fólk er eindregið hvatt til að gera upp árgjöldin núna í sumarbyrjun því þá fær það ekki aðeins árbókina senda heim, heldur líka félagsskírteinið og getur nýtt sér afslætti félagsmanna bæði á ferðum, skálagistingu og búnaði.

Sjá nánar um árbók FÍ 2016: Skagafjörður austan Vatna - Frá Hjaltadal að Úlfsdölum.

Sjá nánar um afsláttarkjör félagsmanna FÍ.