Ármannsfellið fagurblátt í staðinn fyrir Skjaldbreið

Vegna lokana á Kaldadalsvegi verður ekki hægt að ganga á Skjaldbreið í sumarsólstöðugöngu Ferðafélags Íslands á föstudaginn.
Ákveðið hefur verið að ganga á Ármannsfellið fagurblátt í staðinn og er ferðaáætlun að öðru leyti óbreytt.