Barnavagnagöngur á mánudögum

Ferðafélag barnanna býður upp á barnavagnagöngur alla mánudaga í sumar kl 12.30. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir!

Göngurnar taka um það bil 90 mínútur. Hressandi að byrja nýja viku á góðum göngutúr!

Lagt er af stað frá Perlunni og gengið um Öskjuhlíð. Tilvalið er að fá sér hressingu að lokinni gönguferð í góðum félagsskap.