Blysför 27. desember

Ferðafélag Íslands, Útivist og Ferðafélag barnanna standa fyrir sameiginlegri blysför í Öskjuhlíð 27. desember. Gengið frá Nauthóli um göngustíg í Öskjuhlíð. Blysin lýsa okkur leiðina upp að Perlu.
Gangan hefst kl. 17:30. - 19:00.

Jólasveinar heimsækja göngufólk í skóginum í Óskjuhlíð, taka lagið og segja sögur.

Blysum dreift ókeypis í upphafi ferðar, þau loga tæpan klukkutíma og gott að taka með sér aukablys.

Mætið í góðum fatnaði og með húfu og vettlinga.

Þátttaka ókeypis / allir velkomnir.