Blysför í Öskjuhlíð fimmtudaginn 29.desember

Fimmtudaginn 29. desember standa Ferðafélag Íslands og Útivist fyrir blysför í Öskjuhlíð.  Blysförin hefst kl. 18 frá Nauthóli. Gengið er að Perlunni og tilbaka eftir stígum í skóginum.  Jólasveinar heimsækja hópinn og taka lagið. Allir fá kyndla og flugeldum skotið á loft.  Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir.