Ferðafélag Íslands býður upp á dansnámskeið í sal Ferðafélagsins, miðvikudaginn 29. janúar og þrjá miðvikudaga þar á eftir.
Dagskráin er eftirfarandi:
29. janúar kl. 18.00
5. febrúar kl. 18:00
19. febrúar kl. 18:00
26. febrúar kl. 18:00
Hver danstími er rúm klukkustund og er áhersla lögð á samkvæmisdansa.
Danskennari er Anna Claessen og verkefnisstjóri er Reynir Traustason.
Anna var framkvæmdastjóri Dansíþróttasambandsins 2018-2019. Hún er með 10 ára reynslu í samkvæmisdansi og keppti hérlendis og erlendis í bestu hópunum.
Þátttökugjald á námskeiðið fyrir parið er aðeins 18 þúsund krónur. Skráning fer fram á skrifstofu Ferðafélags Íslands í síma 568 2533 eða á heimasíðu félagsins