Draugaferð í haustmyrkri

Draugaferð í elsta sæluhús Ferðafélagsins í Hvítárnesi. Þátttakendur hittast við Geysi í Haukadal kl. 10 að morgni laugardags. Þaðan er ekið í rútu inn á Kjöl. Staðnæmst verður við afleggjara að Beinhól og gengið þaðan að hólnum. Á leiðinni er rifjuð upp harmsagan um endalok Reynistaðabræðra og hinsta legstaðar þeirra við Beinhól vitjað. Þriggja tíma ganga á sléttu landi. Þaðan er ekið í Hvítárnes þar sem verður gist í skálanum en af honum fara magnaðar reimleikasögur. Um kvöldið verður sameiginleg máltíð þar sem gestir borða kjarnmikla kjötsúpu. Á kvöldvökunni verða rifjaðar upp sögur sem tengjast Hvítárnesi og þátttakendur segja frá reynslu sinni af óútskýrðum hlutum. Fyrir háttinn verður dregið um það hver gistir í ,,draugakojunni“. Daginn eftir er reiddur fram morgunverður gangnamannsins sem er lútsterkt ketilkaffi og hnausþykkt rúgbrauð með feitri kæfu og síðan gengið um umhverfi Hvítárness og hinn forni Kjalvegur rannsakaður og sérstakur álfasteinn í nágrenninu. Eftir hádegi taka menn saman föggur sínar og aka niður að Geysi á ný þar sem ferðinni lýkur.

Verð: 20.000/22.000
Innifalið: Akstur, leiðsögn, gisting og sameiginlegur matur.

Draugaferð í haustmyrkri

Samkvæmt könnun árið 2000 trúðu 78% Íslendinga á líf eftir dauðann og kemur niðurstaðan sjálfsagt engum á óvart. Allir hafa fengið gæsahúð yfir góðri draugasögu við réttar kringumstæður. Ferðafélag Íslands byggði sitt fyrsta sæluhús í Hvítárnesi við Hvítárvatn árið 1929 og allt frá fyrstu tíð hafa gengið magnaðar sögur af reimleikum á staðnum.

Um miðjan september nánar tiltekið 12-13 þegar haustmyrkrið er orðið svart og náttúran komin í sinn sölnaða vetrarbúning efnir Ferðafélagið til sérstakrar draugaferðar í Hvítárnes og nágrenni. Með þessu vill Ferðafélagið minnast við þjóðleg og forn fræði og ganga á vit menningararfsins með vettvangskönnun.

Ferðin hefst á laugardagsmorgni þegar farþegar fara í rútu frá Geysi í Haukadal og aka sem leið liggur inn á Kjöl. Á leiðinni verður hin átakanlega saga af feigðarför Reynistaðabræðra rifjuð upp og helstu áfangar þeirra skoðaðir. Rútan ekur hópnum inn að afleggjaranum inn að Beinahól á Kili en þar báru bræðurnir beinin haustið haustið 1780 og enn er hula dulúðar og ósvaraðra spurninga sveipuð um það sem raunverulega gerðist. Hópurinn gengur síðan í fótspor bræðranna og fjárreksturs þeirra að Beinahóli sem eru rúmir þrír kílómetrar hvora leið. Við Beinahólinn vakna fornar sagnir og verða ljóslifandi fyrir augum ferðamanna í þöglu, köldu og miskunnarlausu hrauninu.

Þegar komið er til baka í rútuna er ekið áleiðis í Hvítárnes þar sem gist verður. Þátttakendur setjast saman yfir rjúkandi heita og kjarnmikla kjötsúpu og brauð en eftir kvöldmat er kvöldvaka að fornum sið. Þar verða rifjaðar upp reimleikasögur úr Hvítárnesi og sagt frá nýlegum tilraunum til að kveða niður þá anda sem þar ásækja ferðamenn. Ein koja í húsinu hefur á sér sérstakt orð á þessu sviði og er sagt að karlmenn sem þar hvíla verði oftar fyrir ásókn er aðrir. Dregið verður um það úr hópi karlanna hver fær að gista í “draugakojunni”.

Morguninn eftir reiða fararstjórar fram “morgunverð gangnamannsins” sem er lútsterkt ketilkaffi dísætt með hnausþykkum rúgbrauðssneiðum og spikfeitri kæfu. Eftir morgunmat fara ferðalangar saman í gönguferð um nágrenni skálans og rannsaka rústir sem tengjast draugaganginum, ganga eftir hinum forna Kjalvegi og fara að undarlegum álfasteini í nágrenninu sem tengist sögu Ferðafélagsins með sérstökum hætti.

„Í draugaferðinni í fyrra sáu tvær konur í leiðangrinum farþega í rútunni við Beinahól sem ekki töldust vera af þessum heimi og aðrir vöknuðu við umgang og hávaða í sæluhúsinu um nóttina.“ Þetta sagði fararstjóri FÍ um samskonar ferð sem farin var í fyrra.

Um hádegisbil er haldið til baka með rútunni niður að Geysi þar sem ferðinni lýkur síðdegis á sunnudag.

Fararstjórar eru hjónin Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir og innifalið í fargjaldi er kjötsúpa, morgunverður, rúta, leiðsögn og gisting.

Þess má geta að þessi ferð var fyrst á dagskrá haustið 2008 og í þeirri ferð gerðust ýmsir atburðir sem vart verða skýrðir eftir strangvísindalegum leiðum.

Nánari upplýsingar fást á vefsíðu Ferðafélagsins www. fi.is

eða á skrifstofu félagsins í síma 568-2533