FÍ Fyrsta skrefið og FÍ Næsta skrefið eru marghliða heilsuátaksverkefni sem byggist á reglubundnum göngum á þægileg fjöll. Verkefnið er ætlað þeim sem vilja koma sér af stað eftir hlé eða hefja heilsurækt á fjöllum.
Gengið er á mismunandi fjöll einu sinni í viku, alltaf um helgar. Alla miðvikudaga eru svo ýmist göngur á Úlfarsfell, sjósund undir handleiðslu leiðbeinanda, dans eða hjólreiðar. Farið er á hraða sem hentar hópnum og þrek fólks er smám saman byggt upp.
FÍ Fyrsta skrefið starfar að vori frá janúar til maí, alls 35 viðburðir og lokaverkefni hópsins er ganga á Snæfellsjökul. FÍ Næsta skrefið er sjálfstætt framhald, starfar frá september til áramóta. Greitt er sérstaklega fyrir hvort verkefni fyrir sig.
Umsjón: Reynir Traustason, Ólafur Sveinsson og Guðrún Gunnsteinsdóttir.
Danskennari er Anna Claessen. Heiðrún Hauksdóttir og Sigrún Þ. Geirsdóttir kenna sjósund.
Kynningarfundur FÍ Fyrsta skrefið: Fimmtudagur 2. janúar kl. 20 í sal FÍ, Mörkinni 6.
Verð: 73.900 kr. Árgjald FÍ er innifalið. Skráning.
Hvenær | Klukkan | Hvað | Hvar |
2. jan | 20:00 | Kynningarfundur | Sal FÍ, Mörkinni 6 |
8. jan | 18:00 | Ganga | Úlfarsfell. Draugaþema/Leynigestur |
11. jan | 10:00 | Ganga | Helgarfell í Mosfellsbæ |
15. jan | 18:00 | Ganga | Úlfarsfell. Draugaþema |
18. jan | 18:00 | Ganga | Skjól og skógur. Esjan |
22. jan | 18:00 | Ganga | Úlfarsfell. Draugaþema |
25. jan | 9:00 | Ganga | Hryllingsþema |
29. jan | 18:00 | Dans | Sal FÍ |
2. feb | 9:00 | Ganga | Húsfell í Garðabæ |
5. feb | 18:00 | Dans | Sal FÍ |
9. feb | 9:00 | Ganga | Mosfell |
12. feb | 18:00 | Ganga | Úlfarsfell. Hryllingsþema |
16. feb | 9:00 | Ganga | Helgarfell í Hafnarfirði |
19. feb | 18:00 | Dans | Sal FÍ |
23. feb | 9:00 | Ganga | Æsustaðafjall/Reykjafell |
26. feb | 18:00 | Dans | Sal FÍ |
29. feb | 9:00 | Ganga | Vífilstaðavatn, Gunnhildur, Heiðmörk |
4. mar | 17:00 | Hjól/sjósund | Nauthólsvík |
7. mar | 9:00 | Ganga | Fiskidalsfjall/Húsafell |
11. mar | 17:00 | Hjól/sjósund | Nauthólsvík |
14. mar | 9:00 | Ganga | Stóra-Kongsfell,- Broddaganga |
18. mar | 17:00 | Hjól/sjósund | Nauthólsvík |
21. mar | 9:00 | Ganga | Eldvörpin |
25. mar | 17:00 | Hjól/sjósund | Nauthólsvík |
28. mar | 9:00 | Ganga | Trölladyngja/Lambafellsgjá |
1. apr | 18:00 | Ganga | Úlfarsfell. leynigestur |
5. apr | 8:00 | Ganga | Hafnarfjall, Gildalshnúkur, Geirabakarí |
8. apr | 18:00 | Ganga | Úlfarsfell |
15. apr | 18:00 | Ganga | Úlfarsfell |
19. apr | 8:00 | Ganga | Glymur (Hvalfell) |
22. apr | 18:00 | Ganga | Úlfarsfell |
26. apr | 8:00 | Ganga | Hengill. Kýrdalshryggur |
29. apr | 18:00 | Ganga | Úlfarsfell |
3. maí | 8:00 | Ganga | Móskarðashnúkar |
6. maí | 18:00 | Ganga | Úlfarsfell. Hattaganga |
9. maí | 6:00 | Ganga | Snæfellsjökull * |
* Rúta sem greiðist aukalega og jöklabúnaður nauðsynlegur
Athugið að dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar vegna veðurs og/eða annarra aðstæðna.
Skráning í verkefnið er hér að neðan. Veljið fjölda þátttakanda og smellið á græna BÓKA hnappinn.
Þegar þú ert búin að fylla út allar upplýsingar og samþykkja skilmálana smellirðu á bláa GREIÐA hnappinn og þá ertu fluttur yfir á greiðslusíðu Valitors, þar sem hægt er að ganga frá greiðslunni með debet eða kreditkorti.
Hægt er að skipta greiðslunni í allt að 12 mánuði. Nánari upplýsingar á skrifstofu FÍ í síma 568 2533.