Eitt fjall á mánuði - nýtt verkefni 2013

Kynningarfundur fyrir eitt fjall á mánuði 2013 verður 10. janúar

Nýtt verkefni hefst árið 2013. Hér fyrir neðan er listi yfir fjöllin sem gengið var á árið 2013  Umsjónarmenn verða þeir sömu;  hinir einstöku fjallabræður Örvar og Ævar Aðalsteinssynir.

 Sérstakur kynningarfundur verður haldinn 10. janúar kl. 20.00 í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6.

 Allir velkomnir

Fjall mánaðarins 2013

 

26 janúar Stóra Kóngsfell í Bláfjöllum. 602m.

23 febrúar Ingólfsfjall. 551m.

16 mars Akrafjall. 643m.

27 apríl m. Grænadyngja á Reykjanesi. 400m.

25 maí m. Þríhyrningur. 675m.

29 júní m. Smjörhnúkur í Hítardal. 902m.

6 júlí Skessuhorn. 963m.

31 ágúst m. Skjaldbreiður. 1066m.

28 september Esja Hátindur – Móskarðahnúkar. 909m.

26 október  Ármannsfell. 764m.

16 nóvember Vörðufell á Skeiðum. 392m.

7 desember  Mosfell í Mosfellsdal 285m.

 

 

 


 

Eitt fjall á mánuði 2012

 

28 janúar Helgafell Hafnarfirði 338m. Hækkun göngu 260m. Göngulengd 6 km.

 

25 febrúar Grímannsfell Mosfellsdal 482m. Hækkun göngu 420m. Göngulengd 8 km.

 

24 mars Stóri og Litli Meitill við Þrengsli 514m. Hækkun göngu 250m. Göngulengd 8-10 km.

 

28 apríl Esja Hátindur 909m. Hækkun göngu 800m. Göngulengd 12-15 km.

 

26 maí Kálfstindar við Laugardal 824m. Hækkun göngu 620m. Göngulengd 12 km.

 

23 júní Heiðarhorn Skarðsheiði 1053m. Hækkun göngu 960m. Göngulengd 10 km.

 

07 júlí Hafnarfjall hringur Borgarfirði 844m. Hækkun göngu 740m. Göngulengd 11 km.

 

25 ágúst Hlöðufell 1186m. Hækkun göngu . 740m. Göngulengd 6 km.

 

29 september Vestursúla Botnsúlur 1086m. Hækkun göngu 980m. Göngulengd 13 km.

 

27 október Hengill Skeggi 805m. Hækkun göngu 500m. Göngulengd 12 km.

 

17 nóvember Ármannsfell 764m. Hækkun göngu 500m. Göngulengd 6-8 km.

 

08 desember Skálafell Hellisheiði 574m. Hækkun göngu 280m. Göngulengd 8 km.

 

Helstu áhersluatriði varðandi: Eitt fjall á mánuði 2011

 


Alltaf farið á eigin bílum. Fólk sameinast í bíla eftir hentugleikum.

 

Að jafnaði samferða úr Mörkinni 6 að upphafsstað göngu en þeir sem vilja geta komið beint þangað.
Upplýsingar og kort birtast á heimasíðu FÍ í tæka tíð. T.d. á morgun.
Ferðum ekki aflýst nema Almannavarnir hvetji fólk til að vera ekki á ferli.
Séu aðstæður sérlega erfiðar eða varasamar munu fararstjórar gefa út tilkynningu í tæka tíð um breytta áætlun.
Annars er stuðst við regluna: Það er ekki til vont veður, aðeins rangur klæðnaður.

 Hundar verða að hlíta sérstökum reglum. Aftast í hópnum og alltaf í bandi.

 Sérstakir fararstjórar annast umsjón verkefnisins. Að jafnaði fimm til sex fararstjórar  í hverri ferð.
Samtals hæð fjallanna 9899 m. Samtals hækkun á göngu: 7540 m.

 

 

Mikilvægt er að fólk hugi að búnaði sínum og eru hér því nokkur atriði til athugunar.

Þrenna vettlinga. Ullarvettlinga eða hlýja flís, vindlúffur og aukavettlinga.
Auka sokka.
Auka húfu eða buff.
Ullarnærföt.
Góð peysa.
Göngubuxur
Engan bómullarfatnað
Vind og vatnsheldur stakkur og buxur
Nesti, vatn og heitt á brúsa.
Huga að gönguskónum. Bera á þá feiti eða vatnsvörn.
Gott að hafa legghlífar
Gott að hafa göngustafi.
Gott að hafa mannbrodda eða gúmmíbrodda.
Einnig er um að gera ef fólk hefur tækifæri að ganga meira á milli ferða til að auka þrek og hafa þannig meiri ánægju af ferðunum. Gönguferðir á Þverfellshorn Esju t.d upp að steini, eða á fellin í nágrenni Reykjavíkur eins og Úlfarsfell, Helgafell eru tilvaldar. Benda má á að FÍ stendur fyrir ferðum á Esju reglulega.