Eitt fjall á viku - 27. febrúar

Eitt fjall á viku

Laugardaginn 27. febrúar ganga hóparnir á fjöll sem hér segir:

Vesturbær gengur á Keili kl. 9
Brottför úr Mörkinni 6 kl. 8.15
Ekið sem leið liggur áleiðis til Keflavíkur. Skömmu áður en komið er að afleggjara til Grindavíkur er skilti á hægri hönd merkt Keili / Höskuldarvellir, þeim vegi fylgt að bílastæði við upphaf gönguleiðar á Keili.

Austubær gengur á Valahnúka og í Valaból og kringum Helgafell kl. 9
Brottför úr Mörkinni 6,  VR húsinu og BYKO í Kópavogi bílastæði kl. 8.30
Ekið í Hafnarfjörð, framhjá hesthúsabyggðinni og áleiðis að Helgafell ofan Hafnarfjarðar og að bílastæðinu við Kaldársel, skilti merkt Kaldársel vísa leiðina.

Þorparar ganga á Helgafell ofan Mosfellsbæjar kl. 9
Brottför úr Mörkinni 6, Shell við vesturlandsveg kl. 8.30
Ekið í Mosfellsbæ, inn dalinn hjá Álafossi að bílastæði við upphaf gönguleiðar.