Esjan 107 - góðgerðarganga á Esjuna 2. apríl

Esjan 107 - Ferðafélagið stendur fyrir sérstakri gönguferð á Esjuna 2. apríl sem fengið hefur nafnið Esjan 107.
Þátttakendur mæta kl. 18.00 og greiða með 5 grásleppum þátttökugjald sem rennur óskert til góðgerðarmála. Allir sem þátt taka fá úthlutað númerum sem þeir geyma og er jafnframt happdrættismiði.  Dregið verður úr þátttökunúmerum strax að lokinni göngu á Esjuna.

Markmiðið er að ná 107 manns í þessa gönguferð og eru gríðarlega spennandi verðlaun ef þessu fjöldamarkmiði er náð sem ganga á fjallið.  Fararstjóri er hinn síungi Þórður Marelsson.