Esjudagur FÍ og SPRON

Laugardaginn 28. júní bjóða SPRON og Ferðafélag Íslands þér og fjölskyldunni
að taka þátt í fjölskylduhátíð við Esjurætur frá kl. 13 til 15.

Fjölmargt verður til skemmtunar:
Euróbandið, Karíus og Baktus, Jónsi, Esjukapphlaup upp á Þverfellshorn, skipulagðar gönguferðir, hoppukastali, blöðrur,
ís, spennandi ratleikur fyrir alla fjölskylduna, Skógræktarfélag Reykjavíkur gefur plöntur og margt fleira skemmtilegt.

Komdu á fjölskylduhátíðina og njóttu útiverunnar - hlökkum til að sjá þig



Dagskrá:

12:30-13:00 Skráning í Esjukapphlaup
13:00 Esjudagur settur
13:05 Esjukapphlaupið sett
13:10 Kynning á ratleiknum
13:15 Ganga frá Þverfellshorni í umsjón fararstjóra frá Ferðafélagi Íslands
Gönguferð um skóginn á Mógilsá í umsjón Rannsóknarstöðvar Skógræktar ríkisins og Skógræktarfélags Reykjavíkur
13:20 Jónsi tekur lagið
13:50 Karíus og Baktus bregða á leik
14:20 Eurobandið skemmtir
14:55 Verðlaunaafhending fyrir Esjukapphlaupið
15:00 Dagskrá lýkur
Kynnir verður Bergur Þór Ingólfsson