Esjudagur FÍ og Valitor - kvöldganga með Ólafi Erni laugardag kl. 20.30

Hluti af dagskrá Esjudagsins er kvöldganga á Þverfellshorn með Ólafi Erni Haraldssyni forseta FÍ. Kvöldganga er að kveldi laugardags 27. ágúst og hefst kl. 20.30 frá Esjustofu.  Ef aðstæður eru góðar mun kvöldsólin baða hafflötin við sjónarrönd gulrauðum roða og á bakaleiðinni sjáum við ljósin í bænum vakna við undirspil mána og stjarna.

Göngu lýkur fyrir miðnætti.

Þátttaka er ókeypis, þáttaka er ókeypis.

Takið með ykkur nesti og góðan búnað.  Gott er að hafa höfuðljós ef á þarf að halda á leiðnni niður.