Esjudagur FÍ og Valitor - Maximus Músikus mætir í Esjuna

Esjudagur FÍ og Valitor er haldinn sunnudaginn 28. ágúst nk.  Maximus Músikus mætir í Esjuna ásamt tónlistarmönnum úr Sinfóníuhljómsveti Íslands og spilar fyrir unga fólkið í ,,fyrstu búðum" í Esjunni sem settar verða upp í tilefni dagsins. Maximus Múskikus hefur slegið í gegn hjá Sinfóníuhlljómsveitinni og verður án efa glaður að komast út í náttúruna.

Dagskrá Esjudagsins hefst klukkan 13 á sunnudag og má finna hér á heimasíðu FÍ.

Þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis og allir velkomnir.

Nú er um að gera að drífa sig út og vera með.

Ferðafélag Íslands og Valitor