Esjudagurinn - SPRON og FÍ - laugardaginn 23. júní

 

                                           Esjan á Jónsmessu

 

SPRON og Ferðafélag Íslands bjóða þér og fjölskyldunni að

taka þátt í árlegum Esjudegi á Jónsmessunni laugardaginn 23. júní 2007

 

Frábær skemmtun í boði fyrir alla fjölskylduna. Frá kl. 13.00 – 15.00 verður boðið upp á Esjukapphlaup, Karíus og Baktus, Nylon, Jógvan, gönguferðir, hoppukastala, gos, grill og margt fleira skemmtilegt.

 

Um kvöldið verður sannkölluð Jónsmessustemmning og verður gengið upp á Þverfellshorn undir leiðsögn Ólafar Arnar Haraldssonar forseta Ferðafélags Íslands. Söngur, glens og gaman og Jónsmessubrenna á toppi Esjunnar ef veður leyfir.

 

Komdu og njóttu útiverunnar með okkur á Esjunni.

 

Hlökkum til að sjá þig!

 

Með kveðju,

SPRON og Ferðafélag Íslands

 

 

Dagkrá á Esjudegi FÍ og SPRON 

 

Skemmtum okkur saman við Esjurætur

12:30 - 13:00   Skráning í Esjukapphlaup

13:00   Esjudagurinn settur

13:05   Upphitun undir stjórn Hreyfingar

13:20   Esjukapphlaupið ræst

13:25   Ganga á Þverfellshorn í umsjón fararstjóra Ferðafélags Íslands.

Gönguferð um Mógilsá í umsjón Skógræktarfélags Reykjavíkur

13:35   Karíus og Baktus bregða á leik

14:00   Jógvan tekur lög af nýja geisladiskinum sínum

14:30   Nylon stígur á svið og tekur nokkur lög

15:00   Verðlaunaafhending fyrir Esjukapphlaupið

            15:10   Dagskrá lýkur.

 

Vertu með okkur á toppnum – á Jónsmessunótt

20:30   Árni Björnsson þjóðháttafræðingur fjallar um hefðir á Jónsmessu

21:00   Jónsmessu- og miðnæturganga á Esjuna í umsjón Ferðafélags Íslands

23:00   Jónsmessubrenna á Esjutoppi ef veður leyfir.  Sungið við undirleik Guðmundar Hallvarðssonar Hornstrandajarls .

00:15   Haldið heim á leið.

 

Esjan er algjör draumur -  á Jónsmessunótt