Everest Base Camp

Vilborg Arna Gissurardóttir, pólfari með meiru, býður áhugasömum að koma með sér í ævintýralega göngu upp í grunnbúðir Everest í mars á næsta ári.

Kynningafundur verður haldinn næstkomandi fimmtudag 8. desember, kl. 20 í Ármúla 4&6.

Haldið verður til Nepal í mars á næsta ári og boðið upp á kyngimagnaðar gönguferðir um Khumbudalinn í Nepal. Önnur ferðin er hefðbundin gönguferð upp í grunnbúðir Everest og hin ferðin fer einnig á fjallið Island peak.Hópurinn ferðast með heimamönnum og upplifir menningu og landslag sem er engu líkt.

Á kynningarfundinum verður farið yfir dagskrá, fyrirkomulag og sýndar myndir úr fyrri ferðum.

EBC.jpg