Félagsvist

Félagsvist Ferðafélags Íslands

Kæru spilafélagar. 

 Næsta félagsvist verður þriðjudaginn 20. febrúar.  Vistin hefst kl: 20:00.  Spilað verður í Mörkinni 6 – í risinu.

 Hámark þátttakenda er 52.  Fyrstir koma – fyrstir fá. Vinsamlega athugið að félagsvistin er ætluð félögum í Ferðafélaginu og gestum þeirra.

 Verðlaun verða veitt, kaffi og kökur.  Sérstök verðlaun verða veitt þeim sem flest stig hlýtur samtals á öllum spilakvöldum vetrarins.

 Þátttökugjald er 600 kr.

 Sérreglur Ferðafélagsins:

Í nóló er ásinn lægsta spil.

Komi í ljós eftir að spil er hafið, að rangt sé gefið, fær lið þess er gaf 6 stig en hinir 7. Bannað er að stökkva upp á nef sér, þótt samherja verði á í spilamennskunni

Þurfi einhver frá að hverfa vegna þess að fjögur sæti við spilaborð fást ekki fullskipuð eða vegna of mikillar aðsóknar, fær sá 156 stig enda skrái hann nafn sitt á skorblað.

 Lokakvöld verður 13. mars.  Merkið við þennan dag í dagbókinni.

 Lifið heil

Höskuldur Jónsson
Ólafur Sigurgeirsson
Þórunn Lárusdóttir