Félagsvist FÍ 16. október

Félagsvist Ferðafélags Íslands

Kæru spilafélagar.

Í vetur verður spilað þriðjudagana 16.okt., 20.nóv., 15. jan., 19. feb. og 18.mars. 

 Næsta félagsvist verður þriðjudaginn 16. október.  Vistin hefst  kl: 19:30.  Spilað verður í Mörkinni 6 – í risinu.

 Hámark þátttakenda er 52.  Fyrstir koma – fyrstir fá. Vinsamlega athugið að félagsvistin er ætluð félögum í Ferðafélaginu og gestum þeirra.

Verðlaun verða veitt, kaffi og kökur.  Sérstök verðlaun verða veitt þeim sem flest stig hlýtur samtals á öllum spilakvöldum vetrarins.

Þátttökugjald er 600 kr.

Sérreglur Ferðafélagsins:

Í nóló er ásinn lægsta spil.

Komi í ljós eftir að spil er hafið, að rangt sé gefið, fær lið þess er gaf 6 stig en hinir 7.

Bannað er að stökkva upp á nef sér, þótt samherja verði á í spilamennskunni.

Þurfi einhver frá að hverfa vegna þess að fjögur sæti við spilaborð fást ekki fullskipuð eða vegna of mikillar aðsóknar, fær sá 156 stig enda skrái hann nafn sitt á skorblað. Henti að nota “yfirsetu”, fá þeir sem hvíla 7 stig.

 Lifið heil

Höskuldur Jónsson
Ólafur Sigurgeirsson
Þórunn Lárusdóttir

Stig: