Félagsvist FÍ 20. nóvember

Félagsvist Ferðafélags Íslands

Kæru spilafélagar. Næsta félagsvist verður þriðjudaginn 20.nóvember.  Vistin hefst              kl: 19:30

Spilað verður í Mörkinni 6 – í risinu.  Svo spilum við 15.jan., 19. feb. og 18. mars 2008. Hámark þátttakenda er 52.  Fyrstir koma – fyrstir fá. V

insamlega athugið að félagsvistin er ætluð félögum í Ferðafélaginu og gestum þeirra. Verðlaun verða veitt, kaffi og kökur. 

Sérstök verðlaun verða veitt þeim sem flest stig hlýtur samtals á öllum spilakvöldum vetrarins.

Ferðafélag Íslands verður 80 ára 27. nóvember og mun fagna því sérstaklega þann dag.  Við, spilafólk, tökum forskot á sæluna og fáum okkur tertur og pönnukökur með kaffinu 20. nóv.

Þátttökugjald er 600 kr.

Sérreglur Ferðafélagsins:

Í nóló er ásinn lægsta spil.

Komi í ljós eftir að spil er hafið, að rangt sé gefið, fær lið þess er gaf 6 stig en hinir 7.

Bannað er að stökkva upp á nef sér, þótt samherja verði á í spilamennskunni.

Þurfi einhver frá að hverfa vegna þess að fjögur sæti við spilaborð fást ekki fullskipuð eða vegna of mikillar aðsóknar, fær sá 156 stig enda skrái hann nafn sitt á skorblað. Henti að nota “yfirsetu”, fá þeir sem hvíla 7 stig.

Lifið heil

Höskuldur Jónsson
Ólafur Sigurgeirsson
Þórunn Lárusdóttir