Félagsvist þriðjudaginn 13. mars

Félagsvist Ferðafélags Íslands

Kæru spilafélagar. 

Næsta félagsvist verður þriðjudaginn 13. mars.  Vistin hefst  kl: 19:30.  Spilað verður í Mörkinni 6 – í risinu.

Hámark þátttakenda er 52.  Fyrstir koma – fyrstir fá. Vinsamlega athugið að félagsvistin er ætluð félögum í Ferðafélaginu og gestum þeirra.

Verðlaun verða veitt, kaffi og kökur.  Sérstök verðlaun verða veitt þeim sem flest stig hlýtur samtals á öllum spilakvöldum vetrarins.

 Þátttökugjald er 600 kr. Sérreglur Ferðafélagsins: Í nóló er ásinn lægsta spil. Komi í ljós eftir að spil er hafið, að rangt sé gefið, fær lið þess er gaf 6 stig en hinir 7.

Bannað er að stökkva upp á nef sér, þótt samherja verði á í spilamennskunni. Þurfi einhver frá að hverfa vegna þess að fjögur sæti við spilaborð fást ekki fullskipuð eða vegna of mikillar aðsóknar, fær sá 156 stig enda skrái hann nafn sitt á skorblað. Henti að nota “yfirsetu”, fá þeir sem hvíla 7 stig.

Lifið heil

Höskuldur Jónsson

Ólafur Sigurgeirsson

Þórunn Lárusdóttir