Ferðaáætlun FÍ 2010 - gjafakort í ferðir

Ferðaáætlun FÍ 2010

Ferðaáætlun FÍ 2010 er nú í lokavinnslu.  Ferðanefnd hefur skilað áætluninni frá sér til skrifstofu og er nú unnið að ýmsum frágangsatriðum en Ferðaáætlunin kemur út um miðjan janúar.  

Ferðaáætlun FÍ er prentuð og dreift  í 70.000 eintökum og markar upphaf hvers ferðaárs hjá þúsundum Íslendinga.  Í ritinu er að finna yfirlit yfir ferðir ársins og starfsemi Ferðafélagsins í máli og myndum.

Hægt er að birta auglýsingar í Ferðaáætlun FÍ og þannig geta auglýsendur komið skilaboðum með beinum hætti til sífellt stækkandi markhóps er stundar útivist og ferðalög. Frekari upplýsingar veitir Bjarni Freyr í síma 866-4086 en einnig má senda tölvupóst á netfangið bjarni@fi.is.    Með kveðju, Skrifstofa FÍ www.fi.is . s. 568-2533