Ferðaáætlun FÍ 2019 er nú komin til birtingar hér á heimasíðunni og hægt að bóka í ferðir. Prentuðu eintaki ferðaáætlunar FÍ 2019 er dreift til félagsmanna í byrjun janúar. Ferðaáætlunin er stútfull af spennandi ferðum af öllum stærðum og gerðum. Sumarleyfisferðir, helgarferðir, dagsferðir, fjallaskíðaferðir, fjölmörg fjalla- og hreyfiverkefni, áætlun Ferðafélags barnanna og FÍ Ung. Nú dugar ekki að raða í sig konfekti og belgja sig út af jólasteikum með sósum og tilheyrandi. Bóka strax í ferðir og drífa sig út að ganga -)