Ferðafélag Barnanna stofnað

Fréttatilkynning.

Ferðafélag Íslands boðar til stofnfundar Ferðafélags Barnanna mánudaginn 22.júní kl .13.30 við rætur Esju – nánar tiltekið við göngustíginn á Þverfellshorn

Nú sem aldrei fyrr er nauðsynlegt að hlúa að heilbrigði og virkni allra barna og fjölskyldna og með stofnun þessa nýja félags leggur Ferðafélag Íslands sitt lóð á vogaskálarnar.  Með þessu nýja félagi verður lögð mikil áhersla á að bjóða upp á ferðir og uppákomur á forsendum barnanna með það fyrir augum að víkka sjóndeildarhring þeirra og upplýsa um heilbrigða lífshætti úti í náttúrinni.

Í þessu samhengi má segja að höfuðmarkmið Ferðafélags Barnanna sé að fá öll börn til að upplifa sanna gleði í náttúrunni og upplifa sjálf leyndardóma umhverfisins.

Ástæðan fyrir því er að ferðirnar verða á forsendum barnanna -  þær  verða sniðnar að þörfum barna upp að 12 ára aldri og má skipta þörfunum gróflega í 3 flokka..

  1. Leikskólaaldur  0 – 6 ára.  Hér er um að ræða mjög fjölbreyttar ferðir -  stuttar ferðir með barnavagna, fjöruferðir, hestaferðir, stuttar fjallgöngur. Ferðir í grunnbúðir Esjunnar – Heiðmörk -  Elliðaárdalur – ofl.

  2. Grunnskólaaldur  6 – 9 ára.   Á þessum aldri er athafnaþrá í hvað mestum blóma og nauðsynlegt að veita þessum aldri sérstaka athygli. Þau geta lagt á sig talsverðar göngur – ef að hugsað er vel um grunnþættina, - aldrei svöng, aldrei kalt og aldrei leið -  Þessi aldur gerir kröfur til virkrar þátttöku í öllu og þarf að skipuleggja vel ratleiki eða rifja upp “ ´íslenska “ leiki og stefna markvisst að þvi að börn á þessum aldri og foreldrar veri saman á virkan hátt.

  3. Aldurinn 10 – 12 ára er að öðlast meira sjálfstæði og vilja láta reyna á eigin getu. Foreldrar eru þó með að sjálfsögðu, en kannski ekki eins virkir þar sem félagarnir eru á þessum aldri að ná æ meiri athygli.  Hér mætti vel skipuleggja góðar dagsferðir t.d. í Þórsmörk eða Landmannalaugum – reyna klifur, safna fjöllum fara á topp Esjunnar o.s.frv.

Með því að stofna Ferðafélag Barnanna nást mörg jákvæð markmið fyrir Ferðafélagið og þjóðfélagið allt.

Útivera:

  • Er nátengd heilsuvernd sem endurhæfing og hefur fyrirbyggjandi áhrif á líkama og sál
  • Er umhverfi ríkra hefða og gilda sem eru samtvinnuð samfélagi okkar
  • Er fjölskylduvæn
  • Útvíkkar og tryggir skuldbindingu þjóðarinnar um öfluga náttúruvernd
  • Getur stuðlað að bættu gildismati varðandi sjálfbæra nýtingu náttúrunnar
  • Einnig er nauðsynlegt að börn og fjölskyldufólk öðlist dýpri skilning á umgengi við náttúruna og náttúrvernd.

Þegar náttúruvernd er annars vegar, er það tilhneiging hagsmunasamtaka og þeirra sem sinna æskulýðsstarfi að einblína á mengun og náttúruspjöll.  Þeir fullorðnu beina þeim tilmælum til barna að þau eigi að taka ábyrgð.  Er þetta leiðin til þess að börnin upplifi sig sem mikilvægan hluta af heildinni og öðlist jákvæð viðhorf til náttúrunnar?  Við kjósum að láta börnin upplifa margt gott í náttúrunni sem leggur grunn að tengingu einstaklingsins við hana.  Það skapar áhuga á útiveru og náttúruvernd sem endist um aldur og ævi. 

Í stuttu máli getum við séð að náttúran:

  • er sannkölluð paradís fyrir fjölbreytta leiki og skemmtun
  • örvar skynjun okkar á umhverfi okkar
  • býður upp á mismunandi og fjölbreytta hreyfingu
  • gerir börnum kleift að skapa sitt eigið leikumhverfi
  • er full af spennandi uppgötvunum og áskorunum
  • er nánast óendanlega fjölbreytt
  • er laus við stétta- og stöðuskiptingu
  • fær hugann á flug!
  • færir okkur tímaleysið (skógurinn, fjallið og áin hafa alltaf verið þarna)
  • byggir upp andlega tilveru okkar
  • stuðlar að góðum gildum og viðhorfum

Það er margt sem að má betur fara í uppeldi barna og má t.d. benda á eftirfarandi staðreyndir til að undirstrika nauðsyn svona átaks:

  • börn horfa á fjölmiðla að jafnaði þrisvar sinnum á dag (sjónvarp, vídeó, tölvur)
  • börn eyða þremur fjórðu af tíma sínum í ýmist atferli sem er stýrt af fullorðnum og mörg eru í skólum og frístundaheimilum allan daginn.
  • börn eru í stöðugt auknum mæli keyrð á áfangastað
  • Helmingur  barna er keyrð í skólann
  • Færni í samhæfingu  barna fer versnandi
  • Þyngd eykst stöðugt og líkamlegt þol versnar
  • Fimmta hvert tíu ára barn hefur einkenni vöðva- og beina vandamála
  • Öll börn geta gerst félagar í Ferðafélagi barnanna og verður árgjaldi mjög í hóf stillt.
  • Börnin fá sín skírteini sem gildir sem aðgangskort að hina ýmsu viðburði.

Jafnframt er Ferðafélaginu mikil ánægja að tilkynna að Kaupþing banki hefur ákveðið að gerast aðalstyrkaraðili Ferðafélags Barnanna.

Allar frekari upplýsingar veitir

Skúli Björnsson
skuli@fi.is

s 893 1911

fh Ferðafélags Íslands
Skúli Björnsson , verkefnisstjóri