Ferðafélag Íslands semur við Advania

Ferðafélag Íslands semur við Advania

 Ferðafélag Íslands hefur undirritað samning við Advania um innleiðingu á viðskiptalausninni ÓPUSallt. „Ferðafélagið er meðal stærstu og öflugustu félagasamtaka í landinu og ákaflega metnaðarfullt í sinni starfsemi. Við höfum átt farsælt samstarf við félagið um langt árabil og það er grundvöllurinn að þessari nýju innleiðingu á nútímalegri viðskiptalausn,“ segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania.

 „Það hentar Ferðafélagi Íslands afskaplega vel að eiga í langtímastarfi við trausta birga, sem veita okkur góða og skjóta þjónustu á hagkvæmu verði. Þannig getum við einbeitt okkur að kjarnastarfsemi félagsins og verið áhyggjulaus um ótengda þætti, líkt og tækniumhverfi okkar,“ segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélagsins.

 „Viðskiptalausnin ÓPUSallt er í notkun hjá hundruðum íslenskra fyrirtækja í öllum atvinnugreinum. ÓPUSallt inniheldur einingar fyrir innflutning, dreifingu, framleiðslu, verkbókhald, bókhaldsþjónustu eða handtölvulausnir. Vefþjónustukostir ÓPUSallt eru þróaðir með Microsoft.NET-tækni og eru hentugir fyrir hnökralaus rafræn samskipti við til dæmis birgja, viðskiptavini, banka og tollayfirvöld. Ferðafélagið hefur um árabil notað fjárhagskerfið TOK+ og uppfærir nú í ÓPUSallt á hagkvæman og fljótlegan hátt,“ segir Davíð Hjaltested hjá Advania.

 Ferðafélag Íslands var stofnað árið 1927. Félagið er áhugamannafélag með 7 þúsund meðlimi og tilgangur þess er að stuðla að ferðalögum um Ísland og greiða fyrir þeim. Innan vébanda Ferðafélagsins starfa 15 deildir víða um landið. Deildirnar eiga og reka skála og halda úti skipulögðum ferðum fyrir ferðamenn allan ársins hring.

MYNDARTEXTI