Ferðafélagið með í Ferðalang á sumardaginn fyrsta

Ferðaféalgið býður upp á gönguferð sumardaginn fyrsta og er gönguferðin liður í dagskrá Höfuðborgarstofu í tilefni dagsins.   Hægt er að sjá viðburði dagsins á www.ferdalangur.is

10:00 brottför frá Mörkinni 6.   Gönguferð á Helgafell, skemmtileg fjölskylduganga á þetta fallega fjall með fróðleik um jarðfræði og sögu með Ferðafélagi Íslands.  Ekta gönguferð fyrir alla fjölskylduna. 

Brottför frá Mörkinni 6 á einkabílum, ekið í Hafnarfjörð, upp með hesthúsahverfinu og að Kaldárseli.  Fararstjóri Auður Elva Kjartansdóttir.

Fyrir þá sem vilja mæta beint í Kaldársel þá verður lagt af stað þaðan í gönguferðina kl. 10.30.
Hafið með góðan búnað, gönguskó og í göngufatnaði, með bakpoka og nesti.
Þátttaka ókeypis og allir velkomnir.