Ferðakynningar framundan

Hvert viltu fara í sumar? Á næstu vikum býður FÍ upp á svokölluð ferðakynningarkvöld þar sem fararstjórar fara yfir skipulag ferða og sýna myndir.

Á hverju kynningarkvöldi eru þrjár til fjórar ferðir kynntar í máli og myndum á skýran og skorinorðan hátt og hvert kynningarkvöld stendur aðeins í klukkustund. Allar kynningarnar eru haldnar í risi FÍ, Mörkinni 6 og hefjast kl. 20.

Ertu með valkvíða eða ekki alveg viss hvert skal halda í sumar? Þá er þetta leiðin til að spá og spekúlera, hitta fararstjórana og mögulega ferðafélaga og taka í kjölfarið upplýsta ákvörðun um gönguferðir sumarsins.

Dagskrá ferðakynninganna

Hér fyrir neðan má sjá hvaða ferðakynning er næst á dagskrá. Smellið á nafn hverrar ferðar til að lesa nánar um hana.

 

7. maí, kl. 20. Mánudagur

Boðaföll í Brunahrauni

Um gil, sker og gljúfurbarma

Umhverfis Langasjó

Níu tindar Tindfjalla