FÍ - HÍ og Ferðafélag barnanna með gönguferð nk. laugardag við Vífilsstaðavatn

Hrefna Sigurjónsdóttir, prófessor við Kennaradeild Háskóla Íslands, og Sigurður Snorrason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, leiða gönguferð við Vífilsstaðavatn. Ferðin er sérstaklega sniðin að börnum, ungmennum og fjölskyldum þar sem skoðaður verður gróður, lífríki vatnsins og fuglar sem verða á vegi okkar. Hægt verður að skipta hópnum í tvennt svo að þeir sem vilja ganga fái til þess tækifæri og yngri kynslóðin finnur sér ýmis verkefni til dundurs á meðan. Lagt verður af stað frá bílastæðinu við Vífilsstaðavatn kl. 14 og er gert ráð fyrir að ferðin taki um það bil tvær klukkustundir. Athugið að þessi ferð er farin á sunnudegi.

Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands halda áfram samstarfi sínu um gönguferðir sem efnt var til í tilefni aldarafmælis skólans 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman í áhugaverðum gönguferðum og nú hjólaferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess. Ferðirnar verða fimm talsins og tekur hver um tvær klukkustundir. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.

Markmiðið með samstarfinu er að vekja áhuga almennings á fræðslu og hollri útivist og fjölga valkostum í þeim efnum. Um leið er vakin athygli og vonandi áhugi á fjölbreyttri starfsemi Háskólans og Ferðafélagsins.

http://www.hi.is/vidburdir/med_frodleik_i_fararnesti_lifriki_vifilstadavatns_og_nagrennis
 
---------------------------------
Næstu ferðir:

8. september kl. 11 - Kristín Einarsdóttir, aðjunkt í þjóðfræði við Félags- og mannvísindadeild, leiðir hjólaferð, með aðstoð Þjóðbrókar, félags þjóðfræðinema, þar sem þjóðsögur, draugasögur, hjátrú sjómanna, vikivaki og óvæntar uppákomur verða á vegi okkar.

6. október kl. 11 - Helga Gottfreðsdóttir, dósent við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, leiðir gönguferð um slóðir 250 ára sögu ljósmæðra. Gengið verður frá Skólavörðustíg 11 og komið við á þremur til fjórum áfangastöðum í miðbæ Reykjavíkur sem tengjast sögu ljósmæðra.