Opnar æfingar FÍ Landvætta

Fyrstu æfingar FÍ Landvætta standa öllum opnar til að koma og prufa, sjá næstu æfingar hér að neðan.

Athugið að hámarksþátttaka í verkefninu eru 40 manns og það saxast hratt á plássin. Við hvetjum þá sem ætla að taka þátt til að skrá sig strax til leiks með því að hafa samband við skrifstofu FÍ í síma 568 2533 eða með því að senda póst á fi(hjá)fi.is.

Um leið og fólk skráir sig þá er þeim bætt inn í lokaðan fésbókarhóp FÍ Landvætta og fá æfingaáætlun næstu tveggja mánaða.

Hér má sjá glærur frá kynningarfundi FÍ Landvætta sem haldinn var fimmtudaginn 3. nóvember.

Næstu æfingar

Sameiginleg æfing
Laugardagur 5. nóv.

Kl. 10 við Kaffi Nauthól
Hlaup í Öskjuhlíð (5 km) og heitur pottur með sjódýfingu í Nauthólsvík
Við mælum með því að fólk mæti á hjóli :)

Mánudagur 7. nóv.
Sund 500 m

Þriðjudagur 8. nóv.
Heimaæfing 3x3x3
Nánari upplýsingar í tölvupósti og á lokaðri fésbókarsíðu FÍ Landvætta

Miðvikudagur 9. nóv.
Hjól 10 km

Sameiginleg æfing
Fimmtudagur 10. nóv.

Kl. 18 við Heiðmerkurbrú skammt frá Elliðabænum
Hlaup (7 km)
Höfuðljós nauðsynleg.

Hvað er FÍ Landvættir

FÍ Landvættir er æfingaverkefni sem stendur í 10 mánuði eða fram í ágúst á næsta ári og hefur það takmark að ljúka öllum fjórum þrautum Landvættanna innan ársins 2017.

Landvættaþrautirnar fjórar eru eftirfarandi:

  • Fossavatnsgangan: 50 km skíðaganga. 29. apríl
  • Bláalónsþrautin: 60 km fjallahjól. 3. júní
  • Urriðavatnssundið: 2,5 km útisund. 29. júlí
  • Jökulsárhlaupið: 33 km fjallahlaup. 12. ágúst

IMG_6298-opt.jpg IMG_2432-opt.jpg
Hjólað kringum Þingvallavatn og gengið á skíðum inn í Landmannalaugar

Hópurinn er lokaður og æfir saman úti í náttúrunni á einni stórri æfingu í hverri viku, oftast annað hvort á laugardegi eða fimmtudegi. Þess á milli æfir hópurinn eftir fyrirfram ákveðinni æfingaáætlun.

Þátttakendur í FÍ Landvættum fá mikið persónulegt aðhald, þurfa að skila inn framvinduskýrslum, eru tímamældir og sitja súpufundi með fremstu sérfræðingum landsins í hverri þraut fyrir sig. Þar gefast kjörin tækifæri til að fara nánar í tæknileg atriði, líkamsbeitingu og útbúnað. Þá verður boðið upp á sérstakan fyrirlestur um næringu í kringum æfingar og þrautir sem þessar.

IMG_6876-opt.jpg IMG_3497-opt.jpg
Hlaupið yfir Fimmvörðuháls og synt í Lárvaðli á Snæfellsnesi

Að auki mun hópurinn fjórum sinnum taka æfingahelgar, þar sem sjónum verður beint að einni eða tveimur þrautum á tveimur dögum. Í þessum æfingabúðum verður meðal annars gengið á skíðum inn í Landmannalaugar, hlaupið yfir Fimmvörðuhálsinn og synt í vatni á Snæfellsnesi.

Þátttakendum bjóðast einnig afsláttarkjör á lengri aukanámskeið ef þeir þurfa á því að halda, t.d. skriðsundsnámskeið og gönguskíðanámskeið og þá verður boðið upp á kynningar- og afsláttarkjör á útbúnaði.

Hópstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall.

IMG_3434-opt.jpg IMG_3722-opt.jpg
Uppskeruhátíð eftir Urriðavatnssundið og hópurinn eftir Jökulsárhlaupið

Fyrir hverja?

FÍ Landvættir er fyrir fólk sem vill stunda líkamsrækt úti í náttúru Íslands, setja sér ögrandi markmið og komast í frábært líkamlegt form í þéttum, skemmtilegum og styðjandi félagsskap.

Verkefnið er hugsað fyrir venjulegt fólk sem nú þegar er í sæmilegu formi og hreyfir sig meira eða minna reglulega. Verkefnið er ekki afreksverkefni á par við járnkarlaþrautirnar en hentar illa fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref upp úr sófanum.

IMG_6121-opt.jpg Landv10-opt.jpg
Gönguskíðaæfing í Bláfjöllum og fjallahlaup í Þórsmörk

Til að fólk átti sig á tímamörkum hverrar þrautar fyrir sig þá er lágmarkið nokkurn veginn að fólk geti að minnsta kosti skíðað og hlaupið 10 km á undir 11/2 klst, hjólað 10 km á undir 40 mínútum og synt 1 km á undir 50 mínútum.

Sjá nánar um Landvættaþrautirnar.

Þátttaka í æfingahópnum FÍ Landvættir kostar frá kr. 92.600. Skráningagjöld í allar fjórar þrautirnar er um 45.000. Hægt er að dreifa greiðslunni á fimm mánuði.

13765960_10155031213738098_1509844967422770240_o_opt.jpg
Kátur Landvættahópur í Urriðavatnssundinu