Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar

Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar fer af stað á ný þann 9. maí næstkomandi með göngu á Selfjall en gengið verður á sex fjöll í nágrenni höfuðborgarinnar; þrjú í maí og júní og þrjú í ágúst og september. Verkefnið hlaut mjög góðar viðtökur í fyrra og það voru um 100 börn sem gengu á sex fjöll í nágrenni höfuðborgarinnar í bráðskemmtilegum göngum. Markmiðið með verkefninu er að skapa skemmtilega samveru fyrir börn og fjölskyldur þeirra þar sem allir fá að reyna á sig og njóta náttúrunnar.


“Það var ótrúlega gaman að sjá dugnaðinn í öllum krökkunum í fjallgöngunum í fyrra. Þau voru mjög einbeitt að klára allar göngurnar sex og ef þau komust ekki þá fengum við stundum sendingar um að þau hefðu bara farið á öðrum tíma með fjölskyldunni sinni,” segir Dalla Ólafsdóttir annar umsjónarmanna Ferðafélags barnanna. Hún og Matthías Sigurðarson eiginmaður hennar halda utan um verkefnið og segja að það sé augljóst að fjallgöngurnar séu tilvaldar til að efla með börnunum seiglu og sjálfstraust en umfram allt sé gaman að vera úti með stórum hópi annarra barna og sigrast á sjálfum sér.

Dalla og Matti

Dalla og Matti

Fyrir börnunum sé hvert fjall, hvort það sé á hæð við fimm eða átta Hallgrímskirkjuturna alvöru áskorun sem þau gleðjast innilega yfir að komast á toppinn á. “Svo finnst krökkunum ómissandi að taka með íslenska fánann og taka toppamynd eins og alvöru fjallagarpar gera”, segir Matthías.


Fyrsta gangan 9. maí
Eins og áður sagði hefst verkefnið með göngu á Selfjall fimmtudaginn 9. maí næstkomandi. Sunnudaginn 26. maí verður svo gengið á fallega Keili á Reykjanesi og fimmtudaginn 6. júní verður ganga á Skálafell á Hellisheiði. Að afloknu sumarfríi barnanna verður svo tekinn upp þráðurinn með skemmtilegri göngu á Ásfjall í Hafnarfarið þann 15. ágúst en Ásfjalla lætur lítið yfir sér en býður upp á skemmtilegt útsýni yfir höfuðborgina. Vífilsfell verður svo toppað þann 29. ágúst og lokahátíð verður svo uppganga á fallegu Móskarðshnúka sunnudaginn 22. september. Þar fá börnin afhent viðurkenningarskjal fyrir að klára allar göngurnar og titilinn Fjallagarpur Ferðafélags barnanna auk þess sem pylsur verða grillaðar að hefðbundnum íslenskum sið!

Verkefnið er ætlað duglegum börnum frá allt 4-5 ára aldri og fjölskyldum þeirra og geta allar þær fjölskyldur sem eiga félagsmenn í Ferðafélagi Íslands tekið þátt. Fjallagarpaverkefnið hefst þann 9. maí næstkomandi eins og áður sagði með göngu á Selfjall og verður brottför frá skrifstofu FÍ, Mörkinni 6 kl. 16:30. Hver ferð verður svo sérstakleag kynnt á fésbókarsíðu Ferðafélags barnanna og þá er upplýsingar að finna á heimasíðu FÍ um hverja göngu.

Nánari upplýsingar um ferðir Ferðafélags barnanna