Fjallakvöld FÍ
Fimmtudagur 22. janúar kl. 20
Ferðafélagar, fjallafólk og útivistaráhugamenn hittast og spjalla um ferðir, leiðir, búnað, myndir, bækur og fleira er tengist ferða- og fjallamennsku. Sérfræðingar og reynslumiklir ferðamenn mæta til skrafs og ráðagerða. Kaffi og fjallakakó á könnunni. Fjallakvöldin verða á dagskrá í allan vetur, einu sinni í mánuði á fimmtudögum. Á næstu Fjallakvöldum verður meðal annars boðið upp á kynningar á búnaði, þjónustu og fjölmörgu er tengist fjalla- og ferðamennsku.
Allir velkomnir.